Ferðalag Fönixins
„Ég gleymdi að anda og tíminn hvarf …“ voru orð gagnrýnanda á Álandseyjum um Ferðalag Fönixins eftir að við sýndum þar í stóra sal glænýja menningarhússins í október. Sýningin fékk gríðargóðar viðtökur áhorfenda, en meðal þeirra voru Kristín Árnadóttir, sendiherra Íslands í Finnlandi, og starfsfólk hennar. Þar var einnig Nils-Erik Eklund, ræðismaður Íslands á Álandseyjum, sem heiðraði okkur með veislu að sýningu lokinni ásamt Berit konu sinni og umhverfisráðherra Álandseyja.
„Listformin runnu saman þegar hver listamaður notaði sína töfra, svo úr varð einstakur galdur og stórkostleg heildarupplifun. Bæði Reijo Kela og María Ellingsen hafa sterka, krefjandi útgeislun og túlka af nákvæmni. Samspil þeirra, að hluta spunnið, var samstillt og þeim tókst án þess að segja eitt einasta orð að skapa tvær trúverðugar persónur, manneskjur af holdi og blóði. Myndræn útfærsla var einföld og stílhrein en úthugsuð og áhrifamikil eftir því. Leikmyndin samanstóð af völundarhúsinu, reyknum og tveimur stólum og svo líkömum listamannanna, íklæddum snilldarlega formuðum búningum sem urðu að hreyfanlegum skúlptúrum í samspili við litbrigði ljósanna. Rödd Eivarar Pálsdóttur var dáleiðandi, ég gleymdi að anda og tíminn hvarf … og eini gallinn var að þetta tók enda.“ – Nya Åland