Ferðalag Fönixins – dansleikhúsverk í mótun

Ferðalag Fönixins – um listina að deyja og fæðast á ný

Dansleikhúsverk í mótun; áætluð frumsýning vorið 2011. Goðsögnin um Fönixinn, umbreytingu hans í eldinum þar sem hann brennur upp en rís svo úr öskunni og tekur flugið á ný, er þema verksins. Dansari, leikari og söngvari stíga saman á svið til að leiða áhorfandann inn í eldinn og gefa honum tækifæri til að spegla eigin lífsreynslu í þessari alheimsgoðsögu um listina að deyja og fæðast á ný.

Hvernig tökumst við á við erfiða lífsreynslu sem skekur tilveru okkar og ber með sér myrkur og sársauka? Hvernig sleppum við takinu, leyfum hluta af okkur að deyja en höldum áfram og endurfæðumst? Þetta er hin eilífa áskorun mannlegrar tilveru.

Joseph Campbell, einn fremsti goðsagnafræðingur heims, segir að goðsögur séu líkt og draumar sem mannkynið dreymir saman; draumar sem hjálpa okkur að skilja heiminn og hlutverk okkar í honum.

„Myth is the secret opening through which the inexhaustible energies of the cosmos pour into human manifestation.“ (Joseph Campbell, The Hero with a Thousand Faces)

Í þessu verkefni fylgjum við þessum þræði og rannsökum hina fornu goðsögu um ferðalag Fönixins og fórnarkostnað endurfæðingarinnar. Hópur listamanna skapar sýninguna: María, Eivør, Reijo og Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahöfundur, sem öll tengdust sterkum böndum við sköpun Úlfhamssögu. Þá slæst Filippía I. Elísdóttir búningahöfundur í hópinn, sem og Björn Bergsteinn Guðmundsson, sem hannar lýsinguna.

Listamennirnir eru allir þekktir fyrir að sýna í list sinni sterk tengsl við arfleifð sína og nútímann um leið. Sem hópur vilja þau skapa verk sem byggir á magnaðri goðsögu, um leið og þau gera tilraun til að láta ólík listform mætast og skilin á milli þeirra leysast upp. Með því að vinna með söguna um ferðalag Fönixins vilja þau kafa djúpt í sammannlega reynslu og túlka hana á sinn persónulega hátt í gegnum menningarheim sinn, listform og reynslu.