Er ég mamma mín?
„Er ég mamma mín?“ er lykilspurningin í þessu nýja leikverki eftir Maríu Reyndal, sem fer af einlægni og kjarki með okkur í ferðalag inn að innsta kjarna okkar mikilvægustu sambanda.
Það var gefandi og skemmtilegt að vinna að þessari sýningu með frábæru fólki og fá að skapa fjórar ólíkar persónur. Og það var einstök gjöf að fá að fylgjast með Kristbjörgu Kjeld vinna af óbilandi ástríðu og snilld eftir sextíu og fjögur ár á sviði. Sannkallaður masterclass.