Enginn fer til Færeyja
Við lögðum í leikferð með Enginn hittir einhvern til Færeyja í byrjun september, og Sif Gunnarsdóttir, forstjóri Norðurlandahússins, skoraði á okkur að læra verkið á færeysku. Í einhverju brjálæði tókum við áskoruninni, sem var nokkuð snúið fyrir mig þótt ég kunni málið en þrekraun fyrir Björn Inga, sem talar ekki stakt orð.
Við fengum færeysku leikarana Katarinu Nolsoy og Hans Tórgarð til að lesa verkið inn á band og vorum svo með þau í eyrunum í allt sumar. Þetta tókst og reyndist bæði ótrúlega gefandi og skemmtilegt. Færeyingar kunnu vel að meta Asmussen, lifðu sig inn í sýninguna og bæði grétu og hlógu.