Brjálað par í Finnlandi

Dansleikhúsgjörningur var eitt af ævintýrum haustsins. Finnski dansarinn Reijo Kela fékk Maríu til að flytja með sér í einn dag inn í sixtís-íbúð sem búið var að innrétta í listasafninu í Jyväskylä í Finnlandi. Reijo hefur sérhæft sig í dansspuna á óhefðbundnum stöðum, svo hann var á heimavelli. Hann og María hafa unnið saman um árabil, nú síðast í Ferðalagi Fönixins. Kristiina Ilmonen spilaði á rödd, flautur og bjöllur meðan brjálaða parið tók syrpu og áhorfendur gerðu sig heimakomna.