„Bænin“: prédikun Haralds Níelssonar í Fríkirkjunni í Reykjavík

Fyrsta sunnudag í aðventu, 2. desember, flutti María prédikunina „Bænin“ eftir Harald Níelsson í Fríkirkjunni, en þar stóð hann í prédikunarstólnum fyrir hundrað árum og langar biðraðir mynduðust þegar fólk hópaðist að til að heyra hann tala.
„Það var vægast sagt mögnuð upplifun að ganga þarna inn kirkjugólfið með biblíuna hans í höndunum og flytja þessa tímalausu hugvekju, fulla af visku og kærleika. Sr. Hjörtur Magni sýndi mér þann heiður að leyfa mér að messa þarna með sér, og ég er honum þakklát fyrir traustið og þá virðingu sem hann, fyrir hönd Fríkirkjunnar í Reykjavík, sýnir minningu langafa míns.“