Augun mín og augun þín
Augun mín og augun þín er leikverk í mótun. Í árdaga 19. aldar urðu þrjár skáldmæltar norðanstúlkur fyrir mikilli ástarsorg hver í sínu lagi og brugðust við á ólíkan hátt. Þetta voru þær Guðný frá Klömbrum, Vatnsenda-Rósa og Agnes Magnúsdóttir.
Maður Guðnýjar þoldi illa gáfur hennar og sleit samvistum við hana. Hún yfirbugaðist af skilnaðarsorginni og dó innan árs. Agnes var svikin af ástmanni sínum og fylltist við það slíkri heift að hún réð honum bana og týndi fyrir það lífi sínu. Rósa missti æskuástina í hendur annarrar konu en vann sig í gegnum sorgina, náði aftur vopnum sínum, menntaði sig, ferðaðist og fann loks ástina á ný.
Lífið er lífið og enginn kemst í gegnum það skrámulaust, eins og sést á sögu kvennanna þriggja. En ólík viðbrögð þeirra við svipuðu áfalli vekja áhuga minn, því þar skilur á milli. Agnes og Guðný týndu lífinu um þrítugt en Skáld-Rósa lifði viðburðaríku og gefandi lífi fram á sjötugsaldur.
Í verkinu um Guðnýju, Rósu og Agnesi verða bæði saga þeirra og ljóð gerð lifandi. Skyggnst verður aftur í tímann, en líka horft á reynslu þeirra í sammannlegu ljósi og hún tengd við nútímann.
María Ellingsen vinnur rannsóknarvinnuna og finnur verkinu form ásamt Kevin Kuhlke. Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahöfundur vinnur með þeim að myndrænni útfærslu samhliða.