Arctic Women
Arctic Women er nýtt verk sem María og norska leikkonan Juni Dahr vinna nú að og fjallar um fund manneskjunnar við náttúruna.
Fyrsta útgáfa þess er byggð á dagbókum kvenna sem dvalið hafa á Svalbarða í lengri eða skemmri tíma, en aðrar sögur kvenna á norðurslóðum verða hluti af verkinu í næstu útgáfum.
Frumsýning verður í gamalli kolajárnbrautarstöð sem stendur á stultum í Longyearbyen haustið 2019.
María og Juni ásamt Reijo Kela tilraunadansara frá Finnlandi og Snorra Frey Hilmarssyni dvöldu fyrst á Kolstöðum við smíði verksins, en þau þrjú fyrstnefndu héldu svo til Svalbarða til rannsóknarstarfa.