Arctic Women – Svalbard Movements

Á hjara veraldar í frosnum heimi veltum við Reijo Kela okkur upp úr kolaryki í gamalli lestarstöð á Svalbarða í nokkrar vikur til að skapa fyrstu útgáfuna af nýja verkinu okkar, Arctic Women. Það var frumsýnt á bókmenntahátíðinni í Longyearbyen í september 2019.

Arctic Women, sem fjallar um konur á norðurslóðum og áhrif náttúrunnar á sálina, er afrakstur áralangra rannsókna okkar Juni Dahr leikkonu á sögum kvenna á norðurslóðum, en með okkur á þessu skemmtilega ferðalagi hafa verið Reijo Kela og Snorri Freyr Hilmarsson.

Í þessari fyrstu útgáfu, Svalbard Movements, notuðum við texta úr dagbókum Léonie d’Aunet, franskrar aðalskonu sem fyrst kvenna steig þar fæti árið 1838, Hanne Resvold-Holmsen grasafræðings sem gekk þar um grundir 1907, Christiane Ritter sem dvaldi veturlangt í veiðikofa með manni sínum 1934 og Ellen Nøis, norskrar húsmóður sem fæddi barn einsömul meðan maður hennar var á veiðum. Þess má geta að vegna fjölda áskorana lék ég þetta á norsku (sem ég annars tala ekki).

Það var heiður að deila sviðinu með Reijo og saxófónleikaranum knáa Tore Brunborg, sem samdi tónlistina fyrir sýninguna og flutti hana á sviðinu ásamt Per Oddvar trommuleikara. Þá lét karlakór kolanámufélagsins Den Store Norske ekki sitt eftir liggja.

Leikstjóri var Inger Buresund og ljósameistari Kristin Bredal, miklar hæfileikakonur báðar.