Af fjöllum er ég kominn

Af fjöllum er ég kominn var sýnt fyrir fullu húsi í Norræna húsinu um helgina. Dásamlegt var að sjá ungu leikkonurnar Kristínu og Siggu leiða áhorfendur í ferðalag um útþrá og heimþrá, og Killian kom sterkur inn sem danski húsvörðurinn. Gríðarleg leikgleðin var smitandi og söngurinn og einlægnin gengu beint inn í hjartað. Anna Róshildur gerði geggjaða tónlist, Sóley hreyfingar og Kristmundur hannaði ljósin. Framtíðin er sannarlega björt með þetta hæfileikaríka unga fólk í okkar liði, og það var heiður að fá að leikstýra þeim.