Æfingar hefjast á Enginn hittir einhvern
Þann 1. febrúar var samlestur á verkinu í Norræna húsinu. Leikararnir María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson lásu hinn beitta texta, þar sem í sextán knöppum senum birtast ólíkar myndir af ástarsambandi karls og konu.
Teymið er ekki af verri endanum: danski leikstjórinn Simon Boberg, sem leikstýrði frumuppfærslunni í Kaupmannahöfn og gjörþekkir Asmussen, Raisa Foster danshöfundur frá Finnlandi, Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósameistari, Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahöfundur og Andreas Ljones tónskáld frá Noregi. Verkefnið er unnið í samstarfi við Norræna húsið, þar sem Gunn Hernes og Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir halda um þræðina ásamt Mikkel Harder.