Reykjavík 112

Reykjavík 112 er æsispennandi þáttaröð byggð á metsölubókinni DNA eftir Yrsu Sigurðardóttur.  Kona er myrt á hrottalegan hátt, og sex ára dóttir hennar verður vitni að ódæðinu. Rannsóknarlögreglumaðurinn Huldar fær það verkefni að upplýsa glæpinn og vernda barnið. Barna sálfræðingurinn Freyja aðstoðar Huldar við að komast að sannleikanum. Hún reynir að opna á minningar stúlkunnar […]

Jónsmessunæturdraumur

„Ef satt skal segja þá eru skynsemi og ást ekki mikið í samfloti núorðið.“ Djúpt inn í töfraskógi týnast fjórir ungir elskhugar á flótta og flækjast inn í stríð konungs og drottningar álfanna ásamt leikhóp handverksmanna sem á sér einskis ills von. Tungsljósið og döggin í bland við hugvíkkandi töfrasafa álfana snúa öllu á hvolf […]

Gleðisprengja!

Ástsælasti gamanleikur allra tíma fór á svið Tjarnarbíós haustið 2025 undir merkjum Silfurskeiðarinnar.  Það var sannur heiður að fá að leiða hóp ungra leikara í gegnum sköpunarferlið sem skilaði þessari kraftmiklu sýningu. Enda ekki hægt annað en að segja já þegar tvær ungar nýútskrifaðar leikkonur fá jafn metnaðarfulla hugmynd að sínu debut-verki og að færast […]

Reykjavík 112

Glæpa serían Reykjavík 112 eftir metsölubók Yrsu Sigurðardóttur var frumsýnd á RÚV í haust. Þar lék ég virta vísindakonu sem verður skotmark morðingja sem er ósáttur við rannsóknir hennar.  Það er enginn annar er Snorri Þórisson sem framleiðir seríuna fyrir Pegasus en hann framleiddi einnig AGNES, söguna af örlögum Agnesar Magnúsdóttur sem var hálshöggvin 1830 […]

Snerting

Kristófer kynnist japanskri stúlku á námsárum sínum í London en einn daginn hverfur hún sporlaust. Hann snýr heim til Íslands vængbrotin en heldur lokst áfram með líf sitt og giftist annarri konu. Þegar hún fellur frá ákveður hann að leggja upp í langferð til að finna skýringu á því hvað orðið hafi um æskuástina. Egill […]

DDR / ÞaÐ sem eR

„I bessari einlagu syningu far textinn og einstök tilfinninganamni Mariu
Ellingsen leikkonu ad njóta sin til fulls.“ – Víðsjá / RÚV

ÞaÐ sem eR / DDR frumsýnt

ÞaÐ sem eR / DDR var frumsýnt í dag 20. janúar í Tjarnarbíó. Það sem er (Det Der eR / DDR) er einleikur eftir danska rithöfundinn Peter Asmussen, byggður á samnefndri skáldsögu hans frá árinu 2012. Sagan gerist í Berlín á kaldastríðsárunum, þegar hugmyndafræðilegur ágreiningur austurs og vesturs stóð sem hæst og Berlínarmúrinn klauf borgina […]

Æfingar hafnar á ÞaÐ sem eR

Æfingar er hafnar á ÞAÐ SEM ER eftir Peter Asmussen. Fallegt og ljúfsárt verk um að elska, vona og svíkja. Frumsýning í Tjarnarbíó 20.janúar 2022.

Hver drap Friðrik Dór?

Gamanþættir um rannsókn Villa Netó á dularfullu hvarfi Friðriks Dórs söngvara. Sagan berst til Færeyja þar sem í ljós kemur að málið er mun flóknara en á horfðist. María leikur færeyskan saksóknara sem mætir Villa í réttarsal.  Þetta er önnur íslenska sjónvarpsserían þar sem hún fær tækifæri til að leika með færeyskum hreim. En hin […]

Hver drap Friðrik Dór?

Þá eru þessir rugl fyndnu sjónvarpsþættir komnir á skjáinn þar sem ég gat nýtt það að vera hálfur Færeyingur og talað með þykkum hreim í senunum. Gaman að vinna með Eilífi Erni og mótleikarnir voru sko ekki af verri endanum. Villi Netó hlýr og gefandi. Benni Erlings dásamlegur og svo hæfileikabúntin Friðrik Dór og Jón […]