News

Af fjöllum er ég kominn

AF FJÖLLUM ER ÉG KOMINN var sýnt fyrir fullu húsi í Norræna Húsinu um helgina. Dásamlegt að sjá ungu leikkonurnar Kristínu og Siggu leiða áhorfendur í ferðalag í gegnum útþrá og heimþrá og Killian kom sterkur inn sem danski húsvörðurinn. Gríðarleg leikgleðin var smitandi og söngurinn og einlægnin gekk inn í hjartað. Anna Róshildur gerði geggjaða tónlist og Sóley hreyfingar

Lesa meira »

Snerting frumsýnd

Fallega ljúfsára kvikmyndin Snerting frumsýnd.  Það var dýrmætt að fá tækifæri til mæta Agli Ólafssyni hér í þriðja sinn á hvíta tjaldinu. En ég lék dóttir hans í Magnúsi, vinnukonuna hans í Agnesi og nú íslensku eiginkonuna. Þá var ekki síður gaman að vinna aftur með Balta frá því að við festum stormasamt ástarsamband Agnesar og Natans á filmu.

Lesa meira »

ÞaÐ sem eR / DDR frumsýnt

ÞaÐ sem eR / DDR var frumsýnt í dag 20. janúar í Tjarnarbíó. Það sem er (Det Der eR / DDR) er einleikur eftir danska rithöfundinn Peter Asmussen, byggður á samnefndri skáldsögu hans frá árinu 2012. Sagan gerist í Berlín á kaldastríðsárunum, þegar hugmyndafræðilegur ágreiningur austurs og vesturs stóð sem hæst og Berlínarmúrinn klauf borgina í tvennt. Sögumaðurinn er ung

Lesa meira »

Hver drap Friðrik Dór?

Þá eru þessir rugl fyndnu sjónvarpsþættir komnir á skjáinn þar sem ég gat nýtt það að vera hálfur Færeyingur og talað með þykkum hreim í senunum. Gaman að vinna með Eilífi Erni og mótleikarnir voru sko ekki af verri endanum. Villi Netó hlýr og gefandi. Benni Erlings dásamlegur og svo hæfileikabúntin Friðrik Dór og Jón Jónsson. Ég held ég hafi

Lesa meira »

Ísalög

Það var aldrei að maður fór ekki í pólitík – en ég fékk tækifæri til að vinna gegn olíborunum á Norðurheimskautinu. sem utanríkisráðherra Íslands á fundi Norðurskautsráðsins í íslensk-sænsku seríunni ÍSALÖG. Sagan gerist á Grænlandi en tökur fóru fram að mestu á Stykkishólmi og var það nokkuð magnað að sjá bæinn breytast og heyra sleðahunda góla þar á kvöldin. Þó

Lesa meira »

Er ég mamma mín?

Er lykilspurning í þessu nýja leikverki eftir Maríu Reyndal og þannig fer hún af einlægni og kjarki með okkur í ferðalag inní innsta kjarna í okkar lykil samböndum. Það var gefandi og skemmtilegt að vinna að þessari sýningu með frábæru fólki og fá að skapa fjórar ólíkar persónur. Og einstök gjöf og að fá að fylgjast með  Kristbjörgu Kjeld vinna

Lesa meira »

Arctic women – Svalbard Movements

Frumsýning á Arctic Women – Svalbard Movements Á hjara veraldar í frosnum heimi veltum við Reijo Kela okkur upp úr kolaryki í gamalli lestararstöð á Svalbarða í nokkrar vikur til að skapa fyrstu útgáfuna af nýja verkinu okkar ARCTIC WOMEN. Var það frumsýnt á bókmenntahátíðinni í Longyearbyen í september 2019.  Arctic Women sem fjallar um konur á Norðurslóðum og áhrif

Lesa meira »

Trú, von og kærleikur

„Trú, von og kærleikur“ er vinnuheiti sjónvarpsþáttaraðar sem María er með í þróun. Þar mun hún beina sjónum sínum að sr.Haraldi Níelssyni langafa sínum sem talin er einn mesti áhrifamaður síðustu aldar í andlegum málum Íslendinga. Haraldur var prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands frá stofnun hans árið 1911 og háskólarektor í annað sinn þegar hann lést vorið 1928. Hann

Lesa meira »

“Bænin” predikun Haralds Níelssonar í Fríkirkjunni í Reykjavík 

Fyrsta sunnudag í aðventu 2. desember flutti María predikunina “Bænin”” eftir Harald Níelsson í Fríkirkjunni en þar stóð hann í predikunarstólnum fyrir hundrað árum síðan og langar biðraðir mynduðust þegar fólk hópaðist að til að heyra hann tala.  “Það var vægast sagt mögnuð upplifun að ganga þarna inn kirkjugólfið með bíblíuna hans í höndunum og flytja þessa tímalausu hugvekju fulla

Lesa meira »